Gleðilegt ár kæru vinir ---- Í Laugarneskirkju hefst hraðferð í 12 sporum Andlegu ferðalagi þriðjudaginn 10. janúar 2012 kl. 20:00 Ath. fundurinn í kvöld fellur niður, kynningarfundurinn verður því eftir eina viku, þann, 17. janúar. ---- Háteigskirkja hefur ákveðið að bjóða uppá 12 spora starfið Andlegt ferðaleg með Vinum í bata. Fyrsti kynningarfundur verður miðvikudaginn 11. janúar klukkan 19:30 ---- Trúnaðarmannafundurinn var haldin 12. nóvember Starfshópurinn þakkar góða mætingu ---- Trúnaðarmannafundur 12. nóvember 2011 Fyrir þá sem vantar trúnaðarmann eða vilja bjóða sig fram sem trúnaðarmann. Til þess að fá eins mikið og hægt er út úr tólf spora prógrammi Vina í bata, getur verið gott að fá sér trúnaðarmann. Trúnaðarmennska er áhrifamikill og mikilvægur þáttur í andlegum vexti fólks. Að fara á fundi er fyrsta og aðal forsendan fyrir lækningu í tólf spora ferlinu. En fundartíminn er takmarkaður og þvi getur verið gott að hafa trúnaðarmann samhliða þvi að fara á fundi. Trúnaðarmaður er jafningi, Vinur í bata og samferðamaður í prógramminu. Hann er enn að reka sig á og gera mistök og læra að takast á við þau. Hann er ekki og á ekki að vera fullkomin og hann er ekki meðferðaraðili og gefur því ekki ráð. Skilningur, virðing, vinátta og traust er grunnurinn í samskiptunum. Ef við höfum sjálf farið í gegnum sporin með trúnaðarmanni- getum við verið trúnaðarmenn. Að vera trúnaðarmaður er það að iðka tólftasporið. Trúnaðarmannafundur verður haldinn laugardaginn 12 nóvember kl.13:00 í kirkju Óháða safnaðarins. Þar kynna trúnaðarmenn sig, auk þess sem fram fer nánari kynning á hlutverki og tilgangi trúnaðarmanns. Hvetjum þá sam hafa farið þetta andlega ferðalag Vina í bata til að bjóða sig fram í trúnaðarmennsku. Góð leið til að styðja við sinn eigin bata og gefa af sér. Leiðbeinendur minnið endilega ykkar sporafara á þennan fund. ---- Batamessur Batamessurnar eru upprunnar hér á Íslandi og er þetta er þriðji veturinn núna sem þær eru starfsræktar. Í batamessu sameina prestur og Vinir í bata krafta sína í viðkomandi kirkju og bjóða öðrum Vinum í bata til sín í messu, sem við köllum batamessu. Batamessurnar eru leið til að styðja við batann, vettvangur fyrir Vini í bata til að koma saman, hvort sem þeir eru búnir að fara sporin eða eru að fara sporin, ekki síður en að átta sig á þvi að það er fólk víðar heldur en í þeirra kirkju/stað að kljást við sama verkefni. Batamessur eru þarfur og mikilvægur liður í starfi Vina í bata og markmið þeirra er að styðja/ styrkja 12 spora iðkandann í því að viðhalda batanum. Allir geta komið og átt notalega og uppbyggilega stund í batamessu. Eftir messuna er boðið upp á létta hressingu, þar sem Vinir í bata geta sest niður og spjallað saman. Samtals eru um átta batamessur haldnar yfir veturinn í mismunandi kirkjum á höfuðborgarsvæðinu. Batamessurnar eru haldnar fyrsta sunnudag í mánuði klukkan 17.00. Sjá má nánari stað og stund í viðburðadagatali Vina í bata hér til hliðar á síðunni. ---- Vinir í bata er hópur fólks (karla og kvenna), sem tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl. Við höfum verið á okkar Andlega ferðalagi með öðru fólki og hvert með öðru og falið Guði að vera leiðsögumaðurinn. Við höfum fundið að vinna okkar í Tólf sporunum hefur leitt lækningu og bata inn í líf okkar og verið okkur andleg vakning. Þess vegna langar okkur til þess að þú fáir líka að reyna bata og eitthvað nýtt og gott inn í þitt líf og þínar aðstæður.
Upplifirðu stjórnleysi í lífi þínu og að þú ráðir ekki alltaf við aðstæður? Hefurðu einhvern tíman velt því fyrir þér að þig langaði til og/eða þú þyrftir á því að halda að skoða lífið þitt - hvert þú stefnir - hverjar tilfinningar þínar eru og hvernig þú getur bætt samskipti þín við annað fólk?
Veistu að Tólf sporin eru kjörið verkfæri til þess arna. Við erum mörg sem getum vitnað um það af eigin reynslu. Sjá reynslusögur.

Halló, halló! Vetrarstarfið er nú að hefjast í kirkjunum. Við hvetjum ykkur sem hafið áhuga á að kynna ykkur sporastarfið og fyrir hvað það stendur, að skoða vel viðburðardagatalið hér til hægri og eins tengilinn: Kirkjur og fundartímar til að athuga hvaða staður og tími hentar ykkur. Það eru allir velkomnir á fyrstu opnu fundina og ekki þarf að skrá sig fyrirfram. ---- 
---- "Guð - gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og visku til að greina þar á milli."
Reinhold Niebuhr Carnegie
|